Pesni.guru - сайт для Гуру
Bjartar vonir rætast, er við göngum bæinn
Brosum og hlæjum glaðir
Vinátta og þreyta mætast, höldum upp á daginn
Og fögnum tveggja ára bið
Fjarlægur draumur fæðist
Borðum og drekkum saddir og borgum fyrir okkur
Með því sem við eigum í dag
Setjumst niður spenntir, hlustum á sjálfa okkur slá
Í takt við tónlistina
Það virðist engin hlusta
Þetta er allt öðruvísi, við lifðum í öðrum heimi
Þar sem við vorum aldrei ósýnileg
Nokkrum dögum síðar, við tölum saman á ný
En hljóðið var ekki gott
Við vorum sammála um það, sammála um flesta hluti
Við munum gera betur næst
Þetta er ágætis byrjun
Статистика страницы на pesni.guru ▼
Просмотров сегодня: 1